Welkomin á Hereford Steikhús

Hereford steikhús leggur einkum áherslu á tvennt: annars vegar að þú fáir góðan mat úr úrvals hráefni og hins vegar að verðlagning veitingastaðarins spilli ekki fyrir þér matarlystinni.

Hereford steikhús leggur allan sinn metnað í að bjóða aðeins upp á besta fáanlega hráefni sem til er hverju sinni og bjóða fjölbreytt úrval aðalrétta, forrétta og eftirrétta.

Matreiðslumeistarar Hereford steikhúss hafa áralanga reynslu af steikhúsum að baki bæði hérlendis og erlendis og gera miklar kröfur til góðs hráefnis. Steikurnar okkar koma frá Kjarnafæði og eru þær sérvaldar, fituofnar og sérverkaðar eftir óskum yfirmatreiðslumeistara Hereford steikhús.Kjarnafæði í samvinnu við Hereford og íslenska nautgriparæktendur gera miklar gæðakröfur til að ná fram hámarksgæðum út úr hverjum munnbita.

Hér á síðunni er hægt að nálgast upplýsingar um matseðil og vínseðil ásamt ýmsum upplýsingum. Kynntu þér fjölbreyttan matseðil okkar hér vinstra megin á vefsvæðinu.


Þriggja rétta tilboð

Hereford Steikhús býður upp á Þriggja rétta máltið alla daga vikunnar...

Nánar

Vín Mánaðarins

Criollo cab-shiraz frá Argentina...

Nánar

Gjafakort í afmælisgjöf

Hvað er betra en að gefa gjafakort á Hereford Steikhús í afmælisgjöf. Hentar bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki.