Hér koma upplýsingar af vef íslenskra kúabænda kjot.is

Afturparturinn - er betri helmingurinn á nautunum

Innanlæri:
Innanlærisvöðvi - roast beef, er talinn besti lærvöðvinn, hann hentar vel til heilsteikingar í ofni. Hann er góður hvort sem er heitur eða kaldur. Roast beef er auðvelt að steikja fyrirfram.

Einnig er hægt að útbúa úr vöðvanum steikarsneiðar sem gott er að léttsteikja á grilli eða pönnu.

Klumpur:
Klumpurinn er ágætur vöðvi en eftir honum endilöngum liggur breið sin. Best er að fjarlægja sinina en við það klofnar vöðvinn í tvennt. Henta vöðvarnir þá vel til heilsteikingar eða í steikarsneiðar á grill eða pönnu.

Oft er þessi vöðvi notaður í gúllas eða pottrétti og er hann úrvals góður í það.

Mjaðmarsteik:
Mjaðmarsteikin er frekar mjúkur bragðgóður vöðvi en í henni liggur sin sem erfitt er að fjarlægja þar sem hún dreifir sér út í vöðvan.

Hentar vöðvinn ágætlega til heilsteikingar, í steikarsneiðar og (sirloninsteikur).

Oft er þessi vöðvi notaður í gúllas eða pottrétti.

Ytra læri - flatsteik:
Ytra lærið er nokkuð þéttur vöðvi og þarf því langan suðu eða steikingartíma.

Þessi vöðvi er góður í gúllas og pottrétti einnig er hann oft notaður í snitzel.

Lærtunga:
Lærtungan er þéttasti vöðvinn í lærinu þó hann sé sinalaus og líti vel út þarf hann alltaf langan eldunartíma og hentar alls ekki til léttsteikingar. Heppilegast er að nota hann í gúllas eða pottrétti.

Hryggurinn- allra bestur þegar naut á í hlut

Lund:
Nautalund er lúxusvara viðurkennd sem besti vöðvinn á nautinu, hún liggur undir afturhryggnum og er sérlega meyr og bragðmild.

Lundin er langmýksti vöðvinn. Hana er best að léttsteikja heila eða í steikarsneiðum.

Hryggjarvöðvi -file:
Hryggvöðvinn er næstmýksti vöðvi nautsins, hann er frábær til heilsteikingar og góður í allar steikur.

Oft er hryggvöðvinn eldaður ósnyrtur þ.e.a.s. með fitu og sin, ýmist heill eða í sneiðum.

Slík steik er oft nefnd entrecote.

Framhryggjarvöðvi:
Snyrtur er framhryggjarvöðvinn frábær til heilsteikingar og góður í steikarsneiðar. Þegar hann er ósnyrtur, með fitu og sinum er hann oft nefndur -prime ribs- þannig er hægt að steikja hann heilan eða skera í steikarsneiðar og matreiða á grilli eða





Hryggjarvöðvi - File


Innanlærisvöðvi


Nautalund


Klumpur


Ytri læri - flatsteik